Frí heimsending á pöntunum yfir 15.000 kr

Styrktargripir Leonard

Styrktarmen Krafts

12.500 kr

Litur
Magn
- +

Hálsmen til styrktar Krafti 2019

Styrktarmen Leonard verður að þessu sinni selt til styrktar Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur. Þetta er í tíunda sinn sem verslunin Leonard í Kringlunni selur skartgripi til ágóða fyrir ýmis líknarfélög.

Kraftur var stofnaður fyrir tuttugu árum. Þetta vandaða hálsmen þótti tilvalið til að ljúka viðburðaríku afmælisári.

Hálsmenin eru fáanleg úr silfri og gullhúðuð og rennur 20% af söluverði hvers hálsmens til Krafts. Hálsmenin eru til sölu í verslun Leonard og í  vefverslun Leonard.