Skilmálar
Persónuupplýsingar
Leonard ehf meðhöndlar persónuupplýsingar kaupanda vegna notkunar á vefsvæði Leonard (www.leonard.is) í samræmi við gildandi lög og reglur um meðferð persónuupplýsinga á hverjum tíma.
Viðskiptaskilmálar
Skilmáli þessi gildir um sölu á vöru og þjónustu Leonard til neytanda. Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingum á kaupum, er grunnurinn að viðskiptum. Skilmálinn og aðrar upplýsingar á leonard.is eru einungis fáanlegar á íslensku. Um neytendakaup þessi er fjallað í lögum um neytendakaup, lögum nr. 16/2016, um neytendasamninga, lögum að samningsgerð, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, lögræðislög og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Seljandi er Leonard ehf, kennitala: 671109-0310, virðisaukaskattnúmer 89246. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 18 ára til að versla á www.leonard.is.
Pöntun er bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun. Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um brögð séu tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar. Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup, sjá nánar í grein 11.
Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, en einungis ef kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfulega pöntunarstaðfestingur þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.
Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum. Vöruúrval getur verið mismunandi milli vefverslunar og verslunnar. Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.
Verð er stöðugt að breytast hjá seljanda vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu.. Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega. Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv.
Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu eða greiðslukorti. Ef greitt er með greiðslukorti er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef greiðsla berst ekki, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu eru vörur fráteknar á lager þar til greiðsla berst. Vörur eru fráteknar í 1 dag með tilliti til frídaga, ef millifærsla berst ekki innan þess tíma er pöntun aflýst.
Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er fram í kaupferlinu hverju má búast við miðað við valda sendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands. Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef varan er uppseld. Allar pantanir yfir kr. 20.000 krefst undirskriftar reikningseiganda gegn framvísun persónuskilríkja þ.e. passa eða ökuskírteinis. Pantanir undir kr. 20.000 eru afhentar aðila á afhendingarstað. Ef að enginn er við er pöntun stungið inn um bréfalúgu ef kostur er. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda. Ef að afhending vöru í heimakstri reynist árangurslaus er hægt að óska eftir nýjum afhendingartíma. Ef að afhending reynist árangurslaus í annað skiptið er vara tekin í geymslu þar til hún er sótt. Geymslutími miðast við 2 vikur og eftir það áskilur seljandi sér rétt til að rifta kaupum.
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samkvæmt vörulýsingu og ógallaðar. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu.
Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Vegna skráningargildis er mælt með að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins.
Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um neytendakaup er tveggja eða fimm ára ábyrgð vegna galla og tilkynningarfrestur neytanda til að leggja fram kvörtun er aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að hann varð galla var.
Athygli er vakin á lögbundnum úrræðum neytenda skv. lögum um neytendakaup ef vara sem þeir hafa keypt reynist gölluð. Neytandi getur: haldið eftir greiðslu kaupverðs; valið milli úrbóta eða nýrrar afhendingar samkvæmt ákvæðum; krafist afsláttar; krafist riftunar; krafist skaðabóta.
Athygli er vakin á því að Kærunefnd vöru - og þjónustukaupa er úrskurðaraðili sem neytandi getur leitað til komi upp ágreiningur – sjá má frekari upplýsingar um nefndina hér: www.kvth.is.
Rísi mál vegna viðskipta í gegnum vefverslunina skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Um viðskipti í gegnum vefverslunina gilda íslensk lög.