Frí heimsending á pöntunum yfir 15.000 kr

Styrktarmen 2019 til styrktar Krafti

Birt 12.December, 2019

Styrktarmen 2019 til styrktar Krafti

Hálsmen til styrktar Krafti

Styrktarmen Leonard verður að þessu sinni selt til styrktar Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur. Þetta er í tíunda sinn sem verslunin Leonard í Kringlunni selur skartgripi til ágóða fyrir ýmis líknarfélög.

Kraftur var stofnaður fyrir tuttugu árum. Þetta vandaða hálsmen þótti tilvalið til að ljúka viðburðaríku afmælisári.

Hálsmenin eru fáanleg úr silfri og gullhúðuð og rennur 20% af söluverði hvers hálsmens til Krafts. Hálsmenin eru til sölu í verslun Leonard í Kringlunni og í nýrri vefverslun Leonard (leonard.is).

 

Ástrós Rut Sigurðardóttir tók við fyrsta styrktarmeninu úr hendi Helgu Daníelsdóttur.

Styrktarmen 2019

 

Fleiri fréttir